Psalms 67

1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Sálmur. Ljóð. 2Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor, [Sela] 3svo að þekkja megi veg þinn á jörðunni og hjálpræði þitt meðal allra þjóða. 4Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa. 5Gleðjast og fagna skulu þjóðirnar, því að þú dæmir lýðina réttvíslega og leiðir þjóðirnar á jörðunni. [Sela] 6Lýðirnir skulu lofa þig, ó Guð, þig skulu gjörvallir lýðir lofa. 7Jörðin hefir gefið ávöxt sinn, Guð, vor Guð, blessar oss. [ (Psalms 67:8) Guð blessi oss, svo að öll endimörk jarðar megi óttast hann. ]
Copyright information for Icelandic